Rangárþing ytra óskar eftir tilboði í verkið „Fossabrekkur“. Óskað er eftir heildarhönnun í verkið, þ.e, arkiteka-, landslags- og verkfræðihönnun.
23. mars 2023
Tjaldsvæði til leigu
Húsakynni bs. auglýsa til leigu tjaldsvæði á Laugalandi.
21. mars 2023
Fundarboð 11. fundur byggðarráðs Rangárþings ytra
verður haldinn að Suðurlandsvegi 1-3, miðvikudaginn 22. mars 2023 og hefst kl. 08:15
17. mars 2023
Landmannalaugar Mat á umhverfisáhrifum
Þann 10. mars 2023 barst Skipulagsstofnun umhverfismatsskýrsla um þjónustumiðstöð í Landmannalaugum sem stofnunin hefur móttekið í samræmi við 22. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og lið 12.03 í 1. viðauka við lögin. Skipulagsstofnun kynnir framkvæmdina og umhverfismatsskýrsluna með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, Fréttablaðinu og Morgunblaðinu 17. mars og á Fréttavef Suðurlands 17. – 24. mars 2023.
16. mars 2023
Ritari - Félags- og skólaþjónustan
auglýsir eftir ritara í 70% starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri tölvukunáttu og góðum samskiptahæfileikum. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um Félags- og Skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Íbúar eru tæplega sex þúsund.
13. mars 2023
Héraðsnefnd Rangæinga auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningaruppbyggingar í Rangárvallasýslu
Skilyrði er að verkefnin sem sótt er um tengist uppbyggingu á menningarlegum arfi eða verðmætum í Rangárvallasýslu.
13. mars 2023
Leiðbeiningar um skógrækt í skipulagsáætlunum
Skógræktin og Skipulagsstofnun hafa gefið út leiðbeiningar sem ætlað er að nýtast við mótun stefnu um skógrækt í skipulagsáætlunum, við veitingu framkvæmdaleyfis og við umhverfismat.
Um er að ræða fjórðu útgáfu leiðbeininganna sem hafa nú verið uppfærðar m.t.t. breyttra laga og stefnu stjórnvalda. Leiðbeiningarnar eru eingöngu gefnar út á rafrænu formi.
13. mars 2023
Mikil söngmenning í Rangárþingi ytra
Fimmtudaginn 16. mars næstkomandi verða haldnir tónleikarnir Raddir úr Rangárþingi á Stracta hótel á Hellu. Fram koma fjölmargir söngvarar og söngkonur sem eiga það sameiginlegt að vera öll úr Rangárþingi.
08. mars 2023
Vilt þú vera hluti af frábæru starfsliði ?
Lundur hjúkrunar- og dvalarheimili óskar eftir starfsfólki í afleysingar.
07. mars 2023
Tillaga að starfsleyfi fyrir Bleikju ehf. að Laugum í Landsveit
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi Bleikju ehf. að Laugum í Landsveit. Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 100 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma. Fráveituvatn fer í setþró áður en það er hreinsað með tromlusíu og veitt í viðtaka.