Anna Hansen frá Leirubakka í Landsveit í aðalhlutverki!
Anna Hansen frá Leirubakka í Landsveit hefur stimplað sig hressilega inn í danskt menningarlíf en hún stundar nám í Danmörku þessi misserin. Hún fékk nýlega hlutverk í söngleik þar sem hún skaut 150 öðrum umsækjendur ref fyrir rass. Við óskum Önnu innilega til hamingju með þennan stórkostlega árangur og vonum að henni gangi allt hið besta í því sem hún tekur sér fyrir hendur í hvert sinn.
05. apríl 2012
Fréttir