Í Rangárþingi ytra eru þrjú íþróttahús. Að Laugalandi, á Hellu og í Þykkvabæ.

Gjaldskrá fyrir leigu á íþróttahúsum eða einhverri þeirri aðstöðu sem þau bjóða uppá er aðgengileg hér.

Íþróttahúsið Hellu

Íþróttahúsið á Hellu er eitt stærsta og glæsilegasta íþróttamannvirkið í Rangárvallasýslu. Íþróttahúsið var formlega tekið í notkun í nóvember 1999. Húsið er um 1200 fm. að stærð, vel búið með löglegum völlum fyrir margar íþróttagreinar.

Íþróttahúsið Þykkvabæ

Fjölnota Íþróttahús í Þykkvabæ var formlega tekið í notkun 8 júní 2002.  Það er vel búið tækjum til leikja og íþróttaiðkunnar.

Húsið skiptist í íþróttasal, fundarsal, leikherbergi, bókasafn,  minni fundarherbergi og þreksal með úrval tækja frá TechnoGym.
Einnig eldhús þar sem vinnuaðstaðan er til fyrirmyndar og allt til alls.   
Mjög góð hreinlætisaðstaða er í húsinu.
Hljóðkerfi, skjávarpi og flygill á staðnum .
Ef vantar húsnæði fyrir veislu,ættarmót, fund,æfingabúðir og fl. þá er Íþróttahúsið í Þykkvabænum staðurinn.

Íþróttahúsið Þykkvabæ - 851 Hella. - Sími: 4887040

Íþróttahúsið Laugalandi

Íþróttahúsið Laugalandi

Umsjónarmaður: Viðar Rúnar Guðnason

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?