Wapp snjallforritið býður þér upp á gönguhring um Hellu þar sem stoppað er á fyrirframákveðnum stöðum og gefnar upplýsingar. Áhersla er lögð á sögu Hellu á fyrstu árum þorpsins. Saga Hellu er ekki ýkja löng en þar hefur þó verið bóndabær í nokkrar aldir.

Snjallforritið mun leiða þig áfram í um 1 ½ klst, leiðin er hringleið og mun færa þig aftur á upphafsreit. Til þess að nálgast  snjallforritið þá skal leita að “wapp” í app store eða google play. Hlaða þarf forritinu niður og því næst leita að Hellu. Þegar búið er að hlaða niður leiðinni er hægt að arka af stað.

Sjá nánar um Wapp app á www.wapp.is 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?