Verkið felur í sér gerð á nýrri götu, Lyngöldu á Hellu. Verkið felur í sér jarðvegsskipti í götustæði samkvæmt kennisniði og leggja styrktarlag. Einnig skal verktaki leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annarra veitulagna. Helstu magntölur eru: Gröftur 1600 m³ Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 900m³ Fráveitulagnir 528 m Vatnsveitulagnir 254 m Hitaveitulagnir 252 m Verklok eru áætluð í lok september 2023 Útboðsgögn verða afhent frá og með 10.maí og skal senda ósk um útboðsgögn á netfangið tomas@ry.is Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 11:00 Þriðjudaginn 30. maí í lokuðu umslagi á skrifstofu Rangárþings ytra Suðurlandsvegi 1 eða á netfangið tomas@ry.is
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?