Villt og alið

Heimilisfang: Þingskálum 4
Sími: 691-1100
Fylgdu okkur:

Fyrirtækið er kjötvinnsla og verslun með úrval af kjöti. Við erum með saltað hrossakjöt og hrossabjúgu, einnig nauta- og hrossasteikur. Lambakjöt, kjúkling, kalkún og hamborgara. Við erum líka með úrval af eðalkryddvörum bæði í sósur, salat, kjöt, fisk og grænmeti. Við tökum líka að okkur almenna vinnslu á lambi, hrossum, nautum, svínum og hreindýrum.

Úr fréttabréfi Rangárþings ytra sem kom út í desember 2020:

Þeir Haraldur Gunnar Helgason og Guðmar Tómasson reka saman kjötvinnsluna Villt og alið á Hellu.

Vinnslan hóf starfsemi sína um Töðugjöld 2018. Hjá Villt og alið er ávallt til frábært úrval af kjöti hvort sem það er lamb, svín, hross, hreindýr, kjúklingur eða gæs þá leynist það í hinum ýmsu útgáfum í kjötborðinu eða frystinum.

Það er virkilega flott úrval af kryddum og sósum sem og hinum vinsælu pylsum frá Tariello sem framleiddar eru í Þykkvabæ.

Kjötvinnsla fyrir einstaklinga er alltaf að verða umfangsmeiri og er það þá svín, hross, lamb og hreindýr.

Fyrir jól og áramót fer ýmis sérframleiðsla í gang s.s. fylltar kalkúnabringur og fleira.

Kíktu við í Villt og alið og kannaðu úrvalið!

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?