Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 17. desember n.k. frá kl. 13-16 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.

Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré. Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum en einnig verður til sölu takmarkað magn af grenitrjám, þau þarf að panta með fyrirvara.

Að venju verður boðið uppá hressingu í skóginum.

Allar nánari upplýsingar eru í síma 8692042.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?