Ágætu foreldrar.

Boðið verður upp á forvarnarfræðslu í Grunnskólanum á Hellu (stofu 1 og 2) fimmtudaginn 20. febrúar kl. 17. Foreldrar og forráðamenn barna og unglinga eru sérstaklega hvattir til að mæta. Einnig hvetjum við alla sem starfa með börnum t.d. í íþrótta- og tómstundastarfi til að mæta.

Aðalfræðsluaðili verður Foreldrahús. Eitt af markmiðum þess er að fræða foreldra um skaðsemi áfengis- og vímuefnaneyslu og fyrstu einkenni hennar, svo að þeir geti unnið markvisst forvarnarstarf með börnum sínum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?