Árleg Jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga - verður sunnudaginn 15.desember n.k. frá kl. 13-16 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.

Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré. Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum. Við verðum auk þess með takmarkað magn af greni. Boðið er uppá að fólk geti pantað tré og verður afhending föstudaginn 20.desember á Hellu og Hvolsvelli milli kl. 17-18. Allar upplýsingar eru í símum 8692042 og 8621957. Með kaupum á íslensku jólatré stuðlum við að minni mengun og styrkjum gott málefni. 

Að venju verður boðið uppá hressingu í skóginum, hlökkum til að sjá ykkur.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?