1.Umsagnarbeiðni-tækifærisleyfi
2206060
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna tækifærisleyfis-tímabundins áfengisleyfis á Rangárbökkum 3-10. júlí 2022. Umsækjandi er Americano ehf, ábyrgðarmaður Hermann M Svendsen.
2.Umsagnarbeiðni - Tækifærisleyfi
2206042
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna tækifærisleyfis - tímabundins áfengisleyfis í hálendisverslun á bílaplani í Landmannalaugum á tímabilinu 1-7. júlí 2022. Umsækjandi er Fjallafang ehf, ábyrgðarmaður Sverrir G Kristinsson.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við veitingu tækifærisleyfis-tímabundins áfengisleyfis til Fjallafangs ehf í hálendisverslun á bílaplani í Lanmannalaugum á tímabilinu 1-7. júlí 2022.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
3.Mið-Sel. Beiðni um umsögn vegna reksturs til gistingar í flokki II.
2201019
Egill M. Benediktsson fyrir hönd sýslumannsins á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Finns Egilssonar fyrir hönd félagsins Þytur í laufi ehf, kt. 700404-4470, um rekstrarleyfi til gistingar í flokki II, tegund "H" í húsnæði félagsins á lóðinni Mið-Sel, Rangárþingi ytra. Beiðni barst 9.11.2021.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis til Þytur í laufi ehf til gistingar í flokki II, tegund H í húsnæði félagsins á lóðinni Mið-Sel í Rangárþingi ytra.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
4.Klettamörk. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis í flokki II, tegund C
2003034
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Aurelien Votat fyrir hönd félagsins Aoy ehf. kt. 531118-1970, um rekstrarleyfi til gistingar í flokki II, tegund "C" á lóð félagsins, Klettamörk í Rangárþingi ytra.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis til Aoy ehf til gistingar í flokki II, tegund C á lóð félagsins Klettamörk í Rangárþingi ytra.
5.Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna hf. 2022
2206054
Lagt fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 13:20.
Samþykkt samhljóða