1.Erindisbréf nefnda - endurskoðun
2207031
Sveitarstjórn vísaði drögum að nýju erindisbréfi til umfjöllunar hjá Hálendisnefnd.
Nefndin hefur farið yfir drög að erindisbréfi nýrrar nefndar um umhverfis-, hálendis- og samgöngumál. Nefndin fagnar samruna þessara málaflokka undir eina nefnd, enda eru skilin oft á tíðum mjög óljós á milli þessara málaflokka og alveg jafn gott að um þá sé fjallað á einum vettvangi. Lagðar voru til nokkrar breytingar við drögin sem verða send sveitarstjórn til nánari umfjöllunar.
Fundi slitið - kl. 16:00.