Einnig sat fundinn Klara Viðarsdóttir undir lið 1.
1.Ársreikningur 2015
1605025
Ársreikningur Húsakynna bs 2015 - KPMG
Farið yfir ársreikning og hann samþykktur samhljóða.
Karl Ölvisson vék af fundi vegna vanhæfis.
2.Eignir í umsjá Húsakynna bs
1601012
Útleiga reksturs eigna á Holtamannaafrétti. Viðbrögð við auglýsingu.
Auglýst var eftir tilboðum í rekstur eigna á Holtamannaafrétti með fresti til 15. maí. Tvö tilboð bárust bæði í Þóristungur, frá Fish partners annars vegar og Karli Ölvissyni og Helgu Maríu Hafþórsdóttur í Þjórsártúni hins vegar. NJ og ÁS falið að ræða við tilboðsgjafa og fá nánari upplýsingar um hugmyndir þeirra um reksturinn og leggja fram tillögu fyrir næsta stjórnarfund.
Fundargerð yfirlesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 08:15.