1.Yfirlit yfir verkefni markaðs- og kynningarfulltrúa 2022-2026
Málsnúmer 2208122Vakta málsnúmer
Farið yfir verkefni markaðs- og kynningarfulltrúa frá síðasta fundi nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
2.Töðugjöld 2022
Málsnúmer 2203038Vakta málsnúmer
Farið yfir skýrslu um Töðugjöld 2022.
Nefndin fór yfir skýrsluna og fagnar skemmtilegum viðburði. Hugað verður að aldursbilinu 12-18 ára fyrir næstu Töðugjöld.
3.Móttökuáætlun erlendra nýbúa
Málsnúmer 2208127Vakta málsnúmer
Drög að móttökuáætlun liggja fyrir sem verða til umræðu á fundinum.
Rætt var um fjölmenningarstefnu og móttökuáætlun. Nichole Leigh forstöðumaður Fjölmenningarseturs kom á fundinn í fjarfundi og fræddi fundarmenn um móttökuáætlun og önnur mál tengd fjölmenningu. Við þökkum henni kærlega fyrir hennar innlegg.
Einnig fengust fyrir fundinn upplýsingar frá SASS um verkefni sem er að fara í gang tengt aðlögun nýrra íbúa sem við getum fengið að vera þátttakendur í.
Áfram verður unnið að málinu í samstarfi við Fjölmenningarsetur og SASS.
Lagt er til að boða til málþings um fjölmenningu á Hellu í nóvember og er markaðs- og kynningarfulltrúa og formanni nefndarinnar falið að halda utanum undirbúning þess með nefndinni. Stefnt er að því að málþingið fari fram miðvikudaginn 16. nóvember.
Kostnaður færist á nefndina.

4.Markaðsherferð
Málsnúmer 2208125Vakta málsnúmer
Rætt um tillögur frá N4 varðandi kynningarmyndbönd fyrir sveitarfélagið og næstu skref í verkefninu.
Nefndin sendir tillögur að skilaboðum á markaðs- og kynningarfulltrúa sem heldur áfram samtalinu við N4 og stefnan er að a.m.k. 2 stiklur verði tilbúnar fyrir áramót.
Kostnaður færist á nefndina.
Kostnaður færist á nefndina.
5.Kaffisamsæti með eldri borgurum
Málsnúmer 2210045Vakta málsnúmer
Tillaga er um að bjóða eldri borgurum í kaffiboð þar sem fulltrúar sveitarstjórnar og annara nefnda munu koma til að skrafa um málefni sveitarfélagsins og það sem er á döfinni.
Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti. Lagt er til að viðburðurinn fari fram sunnudaginn 20. nóvember og verður miðað við aldurshópinn 60 ára og eldri. Nefndin tekur að sér nánari undirbúning.
Fundi slitið - kl. 19:30.