Kjörstjórn Rangárþings ytra kom saman kl. 17 til undirbúnings vegna forsetakosninga 2016 sem fram fara 25. júní nk. Mættir eru Helga, Birkir og Björk ásamt Ágústi sveitarstjóra. Farið yfir kjörgögn og kjörkassar yfirfarnir. Nefndarmeðlimir skiptu með sér verkum og rætt var um framkvæmd kjörfundar. Helga er formaður, Björk er ritari og Birkir sér um veitingar. Ákveðinn kjörstaður, Grunnskólinn á Hellu og auglýsing um kjörfund sett í Búkollu.
Kjörstjórn skipa aðalmenn: Helga Hjaltadóttir, formaður, Birkir Ármannsson og Björk Grétarsdóttir. Varamenn Kristín Bragadóttir, Bogi Thorarensen og Ólafur Helgason.
Kjörstjórn skipa aðalmenn: Helga Hjaltadóttir, formaður, Birkir Ármannsson og Björk Grétarsdóttir. Varamenn Kristín Bragadóttir, Bogi Thorarensen og Ólafur Helgason.