Kjörstjórn Rangárþings ytra kom saman í fundarsal hreppsskrifstofu til undirbúnings vegna alþingiskosninga 2016 sem fram fara 29. okt. nk. Farið var yfir kjörgögn og kjörkassar yfirfarnir. Rætt var um framkvæmd kjörfundar og nefndarmeðlimir ákváðu sömu verkskiptingu og í forsetakosningunum í júní sl. Ákveðinn var kjörstaður, Grunnskólinn á Hellu, og auglýsing um kjörfund sett í Búkollu.
Kjörstjórn skipa aðalmenn:
Helga Hjaltadóttir, formaður
Birkir Ármannsson
Björk Grétarsdóttir, ritari
varamenn:
Kristín Bragadóttir
Bogi Thorarensen
Ólafur Helgason