47. fundur 25. janúar 2022 kl. 08:15 - 09:20 Fjarfundur í gegnum TEAMS
Nefndarmenn
  • Björk Grétarsdóttir formaður
  • Haraldur Eiríksson aðalmaður
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti
  • Elín Grétarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ágúst Sigurðsson Sveitarstjóri
Klara Viðarsdóttir sat fundinn undir lið 1.

1.Rekstraryfirlit Odda bs 2022

Málsnúmer 2201036Vakta málsnúmer

Yfirlit um rekstur Odda bs
Klara Viðarsdóttir fór yfir rekstraryfirlit Odda bs janúar-desember 2021.

Lagt fram til kynningar.

2.Nemendur Odda 2021-2022

Málsnúmer 2201035Vakta málsnúmer

Yfirlit um nemendur í skólum Odda bs janúar 2022
Lagt fram yfirlit um nemendur í skólum Odda bs í janúar 2022. Fjöldi nemenda er nú sem hér segir:
Laugalandsskóli 84
Grunnskólinn á Hellu 134
Leikskólinn Heklukot 77
Leikskólinn Laugalandi 38

Til kynningar.

3.Viðbragðs- og aðgerðaáætlun vegna COVID19

Málsnúmer 2003021Vakta málsnúmer

Ýmsar orðsendingar og skjöl.
Lagt fram til kynningar. Starfsemi í öllum skólum Odda bs hefur á síðustu vikum orðið fyrir áhrifum af útbreiðslu Covid19 og hefur þurft að loka deildum og bekkjum tímabundið vegna sóttkvía og einangrunar. Skólastjórnendur hafa unnið í nánu samstarfi við yfirvöld sóttvarna, rakningarteymi og Almannavarnir við að skipuleggja skólastarfið. Segja má að skólastarfið hafi þrátt fyrir allt gengið þolanlega miðað við aðstæður og ánægjulegt að sjá hve samfélagið hefur staðið þétt saman í þessu erfiða verkefni sem nú fer vonandi brátt að ljúka.

4.Námsleyfasjóður - niðurstaða úthlutunar

Málsnúmer 2201050Vakta málsnúmer

Frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga.
Til kynningar.
Elín Grétarsdóttir vék af fundi.

5.Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags

Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók

6.Erindi vegna skólavistar í öðru sveitarfélagi

Málsnúmer 2112037Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.

7.Erindi vegna skólavistar í öðru sveitarfélagi

Málsnúmer 2201038Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók

8.Erindi vegna skólavistar í öðru sveitarfélagi

Málsnúmer 2201047Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
Fundargerðin yfirlesin og samþykkt í gegnum SIGNET.IS

Fundi slitið - kl. 09:20.