1.Ýmsar upplýsingar úr daglegum rekstri 2024
2402060
Farið yfir ýmis rekstrarmál
Framkvæmdastjóri fór yfir ýmis mál tengdum rekstri SOR. Áhyggjuefni er að flokkun heimilisúrgangs hefur farið versnandi og voru ræddar leiðir til úrbóta eins og frekari kynning. Gerð var verðkönnun varðandi afsetningu á málmum og tengdum efnum og var tilboð frá Hringrás hagstæðast og er framkvæmdastjóra falið að vinna að samningi með fyrirvara um samþykki stjórnar.
2.Rekstaryfirlit 2024
2405040
Farið yfir rekstraryfirlit janúar-mars 2024.
Framkvæmdastjóri fór rekstur fyrstu þrjá mánuði ársins. Resturinn er í samræmi við áætlanir.
3.Stöðumat, áskoranir og tækifæri - Sorpstöð Rang.
2402059
Ragnhildur frá Rögn ráðgjöf ehf leggur fram skýrslu um verkefnið Stöðumat, tækifæri og
áskoranir.
áskoranir.
Ragnhildur fór yfir skýrsluna, fyrirkomulag vinnunar, helstu niðurstöður, tillögur að næstu skrefum og forgangsröðun. Stjórn þakkar Ragnhildi fyrir góða vinnu.
4.Fundargerðir Sorpstöðvar Suðurlands 2024
2404105
325. stjórnarfundur Sorpstöðvar Suðurlands lagður fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:45.