25. fundur 08. apríl 2024 kl. 13:00 - 14:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Viðar Steinarsson aðalmaður
  • Guðrún Elín Pálsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Klara Viðarsdóttir embættismaður
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Klara Viðardóttir framkvæmdastjóri

1.Ársreikningur 2023 - S1-3 hf

2404096

Ársreikningur 2023 til samþykktar
Ársreikningur 2023 lagður fram til samþykktar. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er 7,15 mkr en tap ársins eftir fjármagnsliði er 30,5 mkr. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 15 mkr og eigið fé í árslok nam 316 mkr.
Rekstur utan fjarmagnsliða var nokkurn vegin í samræmi við áætlun en fjármagnsgjöld voru um 20% hærri en áætlað var vegna hærri verðbólgu en gert var ráð fyrir.

Ársreikningur 2023 samþykktur samhljóða

2.Rekstraryfirlit 2024 S1-3 hf

2404097

Yfirlit yfir rekstur jan-mars 2024
Framkvæmdastjóri kynnti yfirlit yfir rekstur jan-mars 2024.
Reksturinn er í ágætis jafnvægi eftir fyrsta ársfjórðunginn en eins og áður eru fjármagnsliðir þó heldur hærri en reiknað var með þar sem lækkun verðbólgu er ekki í samræmi við væntingar.

3.Aðalfundur Suðurlandsvegur 1-3 hf 2024

2404098

Ákveða dagsetningu aðalfundar 2024
Tillaga er um að aðalfundur félagsins fari fram 27.maí 2024.
Framkvæmdastjóra falið að boða til fundar.

Samþykkt samhljóða.

4.Málefni leigurýma á Suðurlandsvegi 1-3

2206063

Farið yfir stöðu leigurýma. Öll nýtanleg rými eru í útleigu.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?