Klara Viðarsdóttir aðalbókari Rangárþings ytra sat fundinn undir lið 1. Einnig var Auðunn Guðjónsson endurskoðandi sveitarfélaganna í símanum undir lið 1.
1.Endurskoðun samninga Rangárþings ytra og Ásahrepps
1412028
Kostnaðarskipting, Þjónustusamningar ofl.
Farið var yfir gögn um þjónustukostnað við byggðasamlög sem liggja fyrir í tillögum. Jafnframt farið yfir mismunandi útfærslur á kostnaðarskiptingu fyrir Odda bs. Klöru Viðarsdóttur og Auðunni Guðjónssyni falið að vinna frekar í gögnum fyrir næsta fund viðræðunefndar sem áætlaður er 27.11 n.k.
2.Áfangaskýrsla um útfærslu verkefna
1503048
Drög að áfangaskýrslu II um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Á og Ry
Farið yfir texta að Áfangaskýrslu II sem liggur nú fyrr í lokadrögum.
Fundi slitið - kl. 09:00.