Einnig sátu fundinn Einar Sveinbjörnsson og Auðunn Guðjónsson frá KPMG og Bjarni Jón Matthíasson forstöðumaður Eignaumsjónar Rangárþings ytra.
1.Greining á samstarfi Á og Ry - KPMG
1502066
Skilvirkni og hagkvæmni í bókhaldi, endurskoðun, áætlana- og ársreikningagerð.
Fara þarf yfir þann ramma sem nýju sveitarstjórnarlögin, nr. 138/2011, setja samstarfsverkefnum sveitarfélaganna. Ákvæði eru í IX. kafla sem fjallar um samvinnu sveitarfélaga og samninga um starfrækslu verkefna.
Ákveðið að fá KPMG til að fara yfir þetta ásamt því að benda á mögulegar leiðir þar sem breytinga er þörf. Einnig að gefa mat á bestu leið til þess að gera bókhald, áætlanir, ársreikningagerð og endurskoðun eins skilvirkt, skýrt og hagkvæmt eins og frekast er kostur í hverju og einu samstarfsverkefna sveitarfélaganna. Óskað er eftir að fá upp kostnað við þessa vinnu og hver tímamörk eru.

2.Endurskoðun samninga Rangárþings ytra og Ásahrepps
1412028
Eignaumsjón, Húsakynni, Vatnsveitan, gámavöllur, snjómokstur, götulýsing ofl
Farið yfir rekstur þeirra verkefna sem snúa að Eignaumsjón.
3.Verkáætlun viðræðunefndar
1501066
Áætlun um fundadaga og umræðuefni
Ákveðið að funda næst þriðjudaginn 24. febrúar kl 8:30 á Laugalandi og ræða þar við forstöðumenn skólanna.
Fundargerð yfirlesin og samþykkt
Fundi slitið - kl. 19:00.