Byggingarleyfi

Hverjir geta sótt um byggingarheimild / byggingarleyfi?
Húseigendur og lóðarhafar eða hönnuðir í umboði lóðarhafa.

Hvernig er sótt um byggingarheimild / byggingarleyfi?
Á slóðinni https://hella.oneportal.is/thjonustugatt er sótt um byggingarleyfi á rafrænu formi. Við innskráningu er krafist íslykils eða rafrænna skilríkja. Umsækjandi getur einnig verið þriðji aðili í umboði lóðarhafa / eiganda. Öllum gögnum frá umsækjanda, hönnuðum eða hlutaðeigandi aðilum skal skilað inn í gegnum gáttina. Hér er einnig unnt að tilkynna framkvæmdir undanskildar byggingarheimild / byggingarleyfi. 

Hér eru leiðbeiningar varðandi umsóknar- og skráningarferlið:

Leiðbeiningar vegna umsóknar Eigandi eða aðili á hans vegum sem sækir um

Leiðbeiningar vegna skráningar fagaðila  Hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar 

Leiðbeiningar vegna framkvæmda háðum byggingarleyfi Framkvæmdir í umfangsflokki 2 og 3

Leiðbeiningar vegna framkvæmda háðum byggingarheimild Framkvæmdir í umfangsflokki 1

Leiðbeiningar vegna tilkynningaskyldra framkvæmda undnanþegnum byggingarheimild eða byggingarleyfi.

Leiðbeiningar vegna eigin framkvæmda undanþegna tilkynningu, byggingarheimildar og byggingarleyfi

Einnig er hægt að sækja um byggingarleyfi á "Mínum síðum" Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á slóðinni https://www.hms.is/. Hér eru leiðbeiningar fyrir umsókn um byggingarleyfi í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun:  Leiðbeiningar. 

Meðferð umsókna um byggingarheimild / byggingarleyfi 
Byggingarfulltrúi fær tilkynningu um að umsókn hafi verið lögð fram.  Umsóknin er yfirfarin af byggingarfulltrúa eða starfsmönnum hans og gengið úr skugga um að hún uppfylli ákvæði skipulags- og byggingarlaga, byggingarreglugerðar, skipulagsskilmála og annarra laga og reglna er málið varða. Þegar form umsóknar hefur verið samþykkt er hún skráð í gagnagrunn embættisins.
Byggingarfulltrúi afgreiðir allar umsóknir um byggingarheimild / byggingarleyfi. Ef sótt er um byggingarheimild / byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki fyrir eða ef um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi fjallar byggingarfulltrúi um málið og ákveður hvort grenndarkynna eigi það sbr. 7. mgr. 43. gr. skipulags- og byggingarlaga. Grenndarkynning tekur minnst 6 vikur. Eftir yfirferð er umsókn lögð fyrir afgreiðslufund byggingarfulltrúa þar sem lagt er lokamat á hana. Að fundi loknum fá allir umsækjendur tilkynningu um afgreiðslu málsins.
Þeir sem hafa skilað inn ófullnægjandi umsóknum fá rökstuðning fyrir því hvers vegna umsókn var ekki samþykkt og gefst þá kostur á að lagfæra hana. Ef umsókn er synjað getur umsækjandi kært niðurstöðuna til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Byggingarfulltrúi leiðbeinir umsækjanda um kæruleið og kærufrest. Úrskurður nefndarinnar er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslustigi. Þegar umsókn hefur verið samþykkt gefur byggingarfulltrúi út formlegt byggingarleyfi eða byggingarheimild að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum og geta þá framkvæmdir hafist.

Skilyrðin eru þessi:
Leyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld, s.s. gatnagerðargjöld hafi verið greidd samkvæmt reglum eða samið um greiðslu þeirra. Byggingarstjóri hafi undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína á framkvæmdinni. Iðnmeistarar hafi staðfest ábyrgð sína á viðkomandi verkþáttum ef um byggingarleyfi er að ræða. Árituðum uppdráttum hafi verið skilað til byggingarfulltrúa

Forsendur málsmeðferðar
Að umsækjandi sé lóðarhafi, húseigandi eða umboðsmaður hans, t.d. hönnuður.
Að hönnuðir hafi löggildingu og fullnægjandi starfsábyrgðartryggingu.
Að rafræn umsókn sé rétt útfyllt.
Að gátlisti sé rétt útfylltur. Að öll önnur gögn uppfylli ákvæði byggingarreglugerðar eftir því sem við á.

Fyrirspurnir
Með fyrirspurn getur húseigandi eða lóðarhafi kannað hvort leyfi muni fást fyrir tiltekinni framkvæmd, án þess að leggja fram fullnaðaruppdrætti. Þetta er gert í því skyni að spara hönnunarkostnað ef fyrirhuguð framkvæmd er ósamþykkjanleg. Sé svar byggingaryfirvalda jákvætt getur fyrirspyrjandi fylgt málinu eftir með byggingarleyfisumsókn eða umsókn um byggingarheimild.

Afskráning umsókna
Umsókn sem ekki hefur verið afgreidd og ekki fylgt eftir af hálfu umsækjanda í sex mánuði verður afskráð úr málaskrá embættisins og uppdráttum eytt. Tilkynning um væntanlega afskráningu verður send út með fyrirvara.

Umsókn um byggingarheimild / byggingarleyfi. (Gera þetta að link með þessari slóð https://hella.oneportal.is/thjonustugatt )

Ef sótt hefur verið um byggingarleyfi fyrir tíð rafrænna umsókna eru hér tenglar á viðkomandi gögn sem þarf að skila svo unnt verði að gefa út byggingarleyfi: 

Yfirlýsing byggingarstjóra og meistara um ábyrgð sína

Byggingarstjóraskipti

Iðnmeistaraskipti

Yfirlýsing iðnmeistara um lok verkþáttar

Yfirlýsing rafvirkjameistara um lok brunakerfis

 

Aðrar umsóknir:

Umsókn um stöðuleyfi

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?