1.Erindi frá LÍV
1910016
Nefndin þakkar fyrir þetta þarfa erindi til að auka öryggi ferðamanna á svæðinu. Nefndin setur sig ekki á móti uppsetningu skiltis en óskar eftir því að fá hnitsettar upplýsingar um fyrirhugaða staðsetningu þess. Nefndin vill árétta mikilvægi þess að skiltið sé á íslensku og þá ensku ef talin er þörf á. Hvað varðar bílastæði þá hefur verið í umræðunni gerð bílastæðis á svæðinu og leggur nefndin til að sveitarfélagið fái álit LÍV um staðsetningu þess.
2.Ósk um leyfi til kvikmyndatöku
1910015
Ósk um leyfi til kvikmyndatöku vegan þáttargerðar við Sauðafellsvatn og Norður-Bjalla.
Nefndin tekur vel í erindið en óskar eftir frekari upplýsingum áður en endanleg ákvörðun er tekin. Óskað er eftir hnitsettum staðsetningum búða og tökustaða, mögulegan fjölda tækja og gerð þeirra ásamt nánari upplýsingum um akstursleiðir. Mögulegt er að tökustaður 1 sé í landi Næfurholts og ef svo er þarf leyfi landeiganda þar. Nefndin leggur til að sveitarfélagið taki gjald vegna útlagðs kostnaðar. Óskað verður eftir fundi með fulltrúa True North og að hann fari fram við fyrsta tækifæri. Afgreiðslu frestað.
Fundi slitið - kl. 15:15.