1.áfangi uppbyggingar skólasvæðis Hellu, viðbygging við Grunnskólann á Hellu

Rangárþing ytra byggir viðbyggingu við Grunnskólann á Hellu sem er 1. áfangi uppbyggingar skólasvæðisins. Byggingin er 530 m2 úr forsteyptum einingum og með holplötum á þaki.

Óskað er eftir verðum í frágang utanhúss, glugga, hurðir, álklæðningar ásamt frágangi á þaki. Einnig er um að ræða fullnaðarfrágangi innanhúss; innréttingar, lagnir, loftræsing og raflagnir.

Helstu stærðir eru:
Grunnflötur viðbyggingar 530m²
Frágangur útveggja 140m²
Þakfrágangur 530m²
Innréttingar 19 stk
Loftaklæðningar 420m²
Gólfefni 400m²
Léttir veggir 140m²

Verktaki fær afhenta reista byggingu með steyptu þaki.

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti með því að senda tölvupóst á tomas@ry.is eða með því að smella á hlekkinn "sækja útboðsgögn" hér að neðan.

Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 10.00 þann 10. maí 2022 í lokuðu umslagi í afgreiðslu Rangárþings ytra að Suðurlandsvegi 1-3 og verða tilboðin opnuð þá að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Útboðsaðili: Rangárþing ytra
Tegund: Framkvæmd
Útboðsgögn afhent 12.04.2022
Skilafrestur 10.05.2022

Útboðsgögn

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?